The Bergmanns

15.10.2008 23:36:52 / tjulli

Er bloggið ekki dottið úr tísku.

Þegar svona langt er um liðið, þar að segja frá síðustu færslu, þá reynist það fjandanum erviðara að byrja aftur. Hluti af því er að mikið hefur dregið á daga fjölskyldunar og ekki tekst að kom því fyrir nema með einhverri langloku ræðu sem þarf að tegja anga sína langt langt aftur í tíma. en svona til að koma mér að stað hef ég ákveðið að birta hér pistil er ég skrifaði fyrir um tæpu ári síðan í tilefni af jólunum. Þetta er sem sé jólakortið frá því síðast.  Dálítið klisjukent en skilar sínu.
Verði ykkur að góðu.

Árið 2007 hefur verið nokkuð viðburðaríkt hjá fjölskyldunni á Vallholtinu.  />

Orri Bergmann hefur átt sviðsljósið líkt og árið áður en nú af öðrum toga þar sem heilsa hans hefur verið verið með betra móti.   Segja má þó að árið hafi farið nokkuð hægt af stað og lítið markvert gerst fyrr en líða tók á vorið en þá má segja að hjólin hafi farið að snúast.  Húsbóndinn hafði tekið upp á því á haust mánuðum 2006 að ljúka stúdentsprófi í dagskóla og lauk hann þeim merka áfanga í maí. Hann lét sér ekki nægja að einbeita sér að náminu heldu þurfti hann einnig að taka virkan þátt í félagslífi samnemenda sinna í uppfærslu leiklistaklúbbs skólans.  

/>
>Fleiri fjölskyldumeðlimir voru áhugasamir um leiklistina. />> Bergþóra lauk 5.bekk í vor. Hún hélt áfram í skátunum, lagði stund á golf og svo frjálsíþróttir er líða tók á haustið. Bergþóra skellti sér á magadans námskeið í  vetur sem fór vel með brennandi áhuga hennar á leiklistinni. Ekki má svo gleyma hve dugleg hún hefur verið að passa bróður sinn. />>
>Eyrún lauk örðum bekk í vor og hóf sinn knattspyrnuferil.  Henni finnst fótboltinn rosalega skemmtilegur og lætur vel af félagskapnum þó svo að hugurinn sé ekki alltaf við það sem er að gerast inn á vellinum
J.  Í haust byrjaði hún svo í 3. bekk og byrjaði að æfa á þverflautu.   />>
>Orri Bergmann hefur vaxið hratt og dafnað vel. Í vor átti hann í smá erfiðleikum með lungnabólgur en verið hress og sprækur síðan. Í ágúst byrjaði hann á leikskólanum Teigaseli og fílar það í tættlur. Þó það hafi verið gott að vera heima með mömmu þá er þetta ennþá skemmtilegra þar sem það er fullt af leikfélögum og bílum. Drengurinn er komin með mikla bíladellu og farinn að gera sér ákveðnar væntingar um í hvaða bílum hann sé að fara í og koma úr leikskólanum. Þar er stóri vinnubíllinn hans pabba í miklu uppáhaldi.>
>

Fjölskyldan fjárfesti í fellihýsi fyrir sumarið og var nokkuð dugleg að nota það. Við fórum m.a. á tvö ættarmót í Jóhönnu fjölskyldu, annað í Hafnarskógi og hitt var vestur í Djúpi n.t. í Heydal.  Var það ljómandi skemmtilegur tími og gaman að hitta ættingjana þó svo að maður þyrfti að hitta suma oftar en aðraJ.   (Kristín systir kom í heimskókn.)>
>

Í ágúst skellti fjölskydan sér í viku til Köbenhavn til að versla í H&M, já og til þess að heimsækja Valdísi systir Jóhönnu. Tíminn var vel nýttur og m.a. var farið í Tivolí, í búðir, á ströndina því veðrið var frábært, í fleiri verslanir, á menningar hátið á islandsbryggju og á RollingStones fyrst þeir voru þarna á annað borð. Einnig skelltum við okkur til Árósa til að heimsækja vini okkar, þau Gunni og Gumma, Christel og Gunnar Sturlu.  Þessi auka túr endaði í Skanderborg hjá Dagmar og Kristni. Takk fyrir okkur – öll sömul.>
>

Eftir frábært sumar tók svo rútínan aftur við. Stelpurnar fóru í 3. og 6. bekk brekkubæjarskóla, Jóhanna tók að sér meiri vinnu  á spítalanum eftir að Orri fór á leikskólann en Ingþór frestaði áformum um háskólanámi og framlengdi sumarvinnuni  hjá Vinum Hallarinnar þar sem hann starfar m.a. sem bíóstjóri á skaganum. />

Tjúllarinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 23:24:16 / tjulli

Orri kominn heim af spítalanum.

 

 

 

Orra var leyft að fara heim á laugardaginn þannig að fjölskyldan gat haldið sjálfa páskana hátíðlega. Er hann samt áfram innskráður og fer daglega suður í lyfjagjöf. Það ástand varir eitthvað fram í vikuna eða þangað til læknararnir treysta sér til að sleppa af honum höndunum. Dvöl hans á spítalanum í þetta skiptið var með betra móti. Var hann fljótur að ná sér af lungnabólgunni eftir að hann komst á sýklalyfin. Hvernig hann fékk þessa sýkingu er hulin ráðgáta og ekkert sem maður pælir of mikið í. Helst grunar okkur þó að fallega vorveðrið sem kom um daginn eigi einhvern þátt í þessu, sól, stilla og nokkrar auka gráður á hitamælum. Það þarf greinilega að hafa allann varann á þegar kemur að Orra og útiveru. Hann hefur ekki mikið fengiðað fara úti að leika sér, nema þá bara stutta stund í einu. Eftir slíka útiveru sést oft á tíðum hvað hann getur verið viðkvæmur fyrir kalda loftinu hér á íslandi. Best væri fyrir okkur að eiga heima einhvers við miðjarðarhafið. En þangað til verður Orri bara að sætta sig við mikla inni veru.

 

Hilsen.

Ingþór


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 21:51:59 / tjulli

We are back!

 



 

Það fór aldrei svo að páska fríið fór ekki í hundana. Maður sá fram á langt og gott frí þannig að tilhlökkunin var meiri en  venjulega.

En málin standa þannig að Orri greindist með lungnabólgu í framhaldi af heimsókn hans á heilsugæsluna í morgun og í kjölfarið verið lagður inn á Lyfjadeild Barnaspítalans til eftirlits og lyfjagjafar.   Gerum við hjónin ráð fyrir nokkura daga dvöl. Allt minna en það verður páska bónus en það sem verður umfram......so be it, við erum orðin öllu vön.  Sem sagt við verðum hérna næstu daga meðan stelpurnar dvelja hjá því nánasta á skaganum.

 

Við munum reyna að skrifa af og til um gang mála.

 

Kveðja ingþór.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 01:37:39 / tjulli

Pop the Glock!

Þá er kominn tími á smá uppdate.

 

Leikritið er náttúrulega löngu búið og afskipti mín af félagslífi nemenda farin einskorðast einungis við frímínóturnar. Þetta var mjög skemmtilegur tími, gott tækifæri til þess að kynnast samnememum mínum betur en undir lokin var leikritið farin að vera íþyngjandi, bæði fyrir mig og fjölskylduna.
Ég hef fundi fyrir smá kaldhæðni hjá fólki þegar ég hef verið spurður hvernig sé að vera í skólanum með öllum unglingunum, eða “smákkrökkunum” eins og sumir vilja orða það.
Ég kvarta ekki. Þetta er bara þrælskemmtilegt lið, margt hægt að læra af þeim og þau af mér. Það hefði verið ekkert mál að einangra sig út í horni en ég er bara félaglyndari en það. Ég hef alltaf séð tækifæri í því að stofna til góðra samskipta. Þessi skólinn hefur í gegnum tíðina alið af sér margan framtíðarmanninn og það er aldrei að vita hvenar það kæmi sér vel að vera með réttu samböndin. En eftir þessa endurkomu hef ég mun minni áhyggjur af framtíð þessa lands hvað varðar hina alræmdu unglinga. Svo virðist sem lítið hafi breyst frá því ég var þarna fyrir 16 árum annað en það að Borgnesingarnir hafi yfirgefið Borgnesingahornið sem er að vísu viss afturför. :-)

 

Páska fríið og undanfari þess hefur til þess farið algerlega í vaskinn. Síðustu vikuna fyrir frí eyddi ég í einhver viðbjóðsleg veikindi og er ég var rétt ný staðinn upp úr þeim tók annað við. Svo virðist sem Orri sé að fá sinn skerf að þessu líka. Kallinn er búinn að vera hálf tuskulegur og þreyttur, sér í lagi að þurfa að hanga inn allan liðlangan daginn. Hann nota hver tækifæri til að komast út og gengur það svo langt að hann biður gesti og gangandi að taka sig með sér. Segir svo bara “bæbæ” við foreldranna. En vonandi fer ástandið á okkur feðgunum að batna í kjölfar þeirra gleðifregna er komu inn um bréfalúguna í gær. Þetta var nú nokkuð fyrir sjáanlegt er bréfið frá Háskóla Reykjavíkur lá á forstofu gólfinu. Það var óvenju þykkt. Ekki er mikillar útskýringar þörf þegar fólki er synjað um skólavist. Grunur minn var því á rökum reistur er ég opnaði tilkynningu þess að umsókn mín um nám við Háskóla Reykjavíkur hefði verið samþykkt. Óvissa var eitthvað farinn að naga mig eftir fréttir þess efnis að háskólar á íslandi tækju ekki nógu vel í það útspil Menntamálaráðuneitisins að bjóða upp á framhaldsnám til stúdentsprófs eftir starfsnám. Enda er undibúningsdeild RU miklu meiri pakki en það sem ég er að ljúka við. Það var samt þess virði að taka sénsin og losna við Þýskuna.
Það að er þá ekki lengur bara stefnt að háskólanámi í haust, það er orðið að staðreynd svo lengi sem maður klárar skólan í vor.

 

Að lokur langar mig til að deila með ykkur upplifun helgarinnar. Helgin, sem búið var að merkja sem fríhelgi, fór eins og svo margar aðrar í að "giggast" svolítið þar sem hver selebið rak annað. Á föstudaginn vorum við Laddi (t1ao) á Kvennakvöldi ÍA en á laugardagskvöldið var ég að mixa unga stúlku er nefnir sig Guffie. Þetta er eitthvað Hiphop chick frá Miami en uppalinn í París og svo virðist sem hún sé að gera garðinn frægan í hini víðri veröld þessa dagana. Hver kannast ekki við lagið Pop the Glock????  Allavega ég, núna!
Þetta var nú ekki merkilegt gigg þar sem hún kom aðeins fra í rúm 30min en svo var einhver brjálaður franskur dj sem þeytti skífur í 3 ½ tíma þar á eftir og ég þurfti að bíða meðan gæinn fór hamförum á sviðinu. Ég nýtti þá bara tímanní að sannfærast ennþá betur um ágæti þess að banna reykingar á skemmtistöðum og veitingarhúsum. Verst að það hafi ekki núþegar tekið gildi. Mikill hávaði, mikill sígarettureykur, fullt af fullu eða dópuðu fólki og enginn sem maður þekkti. Ekki mikið stuð í því en eitt gott hafði ég þó upp úr þessari Reykjavíkur reisu, annað en peninga. Svo skemmtilega vildi til að ég fór fyrir slysni á tónleika Færeyskra tónlistarmanna á Nasa. Þar var meðal annara hann Teitur, nokkur sérstakur gaur, sem vakti óskipta athygli mína fyrir angurværar lagasmíðar og sér í lagi túlkun sína á þeim. Tónlist hans og ferill er eitthvað sem ég mun gefa gaum um ókomna framtíð og hvet ég ykkur til að gera hið sama.

Skil ykkur eftir með tvo linka svo að þið getið kynnt stjörnum helgarinnar betur.

 

          

Uffie                               Teitur

 

Hafið það svo sem allra best um páskana.

 

Ingþór.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 23:43:34 / tjulli

Næstum því (ofboðslega) frægur

Heilir og sælir félagar.

Allt gengur sinn vanagang á skaganum, en ekki hvað? Nóg að sísla og sansa og eins og manni finnst maður vera að gleyma einhverju, og mér finnst það mætti vera meira bil á milli Potturinn og og og og og pannann! " Náðiressu?

Verkefnastaðan þessa önnina er að töluvert frábrugðin þeirri síðustu, þar sem skólinn er að spila nokkuð stærri rullu en áður. (7 áfangar og 21 ein, þ.a. 15 tengdar raungreinum.) Þetta þýðir að eitthvað verður undan að láta fyrr eða síðar, en hingað til hefur maður verið að troða marvaðan í öllum fötunum. Líður að því að maður fari að týna af sér spjarirnar svo maður fljóti betur. Lífið er nefnilega þannig, þrátt fyrir að maður haldi að maður sé ómissandi á öllum vígstöðum, að það kemur alltaf einhver á eftir og fer í spjarirnar sem maður hefur týnt af sér á sundinu. Nú ef ekki, hvað var ég þá að gera í þeim til að byrja með?

 

En það verður líklegast ekkert slakað á fyrr en eftir síðustu sýningu Leiklistarklúbbs NFFA á stórsönleiknum "Næstum því (ofboðslega) frægur" eða Almost famous eins það heitir á frummálinu. Víst maður er í þessum skóla á annað borð, neyðist maður þá ekki til þess að hafa þetta eins og í gamladaga. Þannig í stað þess að fækka fötum í djúpulauginni rakst ég á dúnúlpu á floti, kominn í hana og á bara eftir að renna upp.

EN það er ekkert ókeypis í þessu lífi.

Ingþór.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 11:17:01 / tjulli

"Blogg" um ekkert handa engum,

Hvað er eiginlega að gerast með þetta blogg dót. Er þetta að verða úrelt fyrirbæri eða er tímaskorturinn svona mikill, er ég svona tómur eða hefur maður frá svo littlu að segja. Manni finnst maður hafa ekki frá neinu að segja þegar allir hlutir eru að ganga upp og ekki er yfir neinu að kvarta. Ég er einhvernveginn þannig að ég á erfitt með að finna upp viðfangsefni þegar allt er eins sjálfsagt og það virðist vera. Blogg er væntanlega vetfangur þar sem maður segir frá sjálfum sér og skoðunum sínum á málefnum líðandi stunda. Ég er allavega ekki með blogg til þess að fara að tala um einhverja aðra en mig og mitt nánasta. Svo eru það sumir sem eru að rífa upp "áhorfið" hjá sér með ýmsu móti. Það eru nátt. fjölmargir að pólitík, en hver er ekki kominn með ógleði fyrir henni fyrir löngu og svo margt annað hægt að blogga um en það. Að ræða pólitík á bloggsíðunni sinn er afleiðing þess að mönnum finnst eitthvað að, nem þá að viðkomandi sé atvinnupólitíkus. En einn félagi minn hefur tekið upp þá yðju að skrifa um "húsin í bænum". Hann skrifar stutt innslög um húsin sem honum finnst merkilegust í gamla heimabænum sínum Bolungarvík. "Bolungarvík!" Heyra má bjöllum klingja hjá allflestum er þetta lesa. Já, Kalli Hallgríms, hann deyr ekki ráðalaus. Ansi gott framtak af hans hálfu, ekki bara honum og öðrum til skemmtunar heldur einnig er þetta góð leið til sagnaritunar sem síðar meir gæti komið sér vel. Bloggið er ekki bara góður frásagna miðill, heldur er það einnig frábært verkfæri til geyma sagnir frá fyrri tíð, ef vel er að verki staðið. The-Bergmanns hefur verið til frá því í ágúst 2005. Í upphafi var honum ættlað að segja frá því sem á daga okkar dreyf er Orri var á Barnaspítalanum. Allar færslur frá þessari tíð eru enn aðgengilegar og oftar en ekki sem maður kíkir á þær, svona rétt til að muna hvað var á seiði og hvenær gerist hitt og þetta.
Þannig að ég ættla að halda áfram að blogga sama hve púgó það getur orðið. Í núinu getur það orðið fyrir þig en til framtíðar fyrir mig.

Við endum þetta á smá bút sem er eftirfarandi, með leyfi höf.

"
Ég ættla að "blogg'um" ekker,

bara yfirleitt ekki neitt.

Ég ættla að "blogg'um" ekker,
hvorki ekki neitt vítt og breytt.

"Blogg" um ekkert handa engum,

og til einskins yfirleitt.

Meistarinn.             "
ib

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 01:26:13 / tjulli

7,7,7,7,8.

Þá er þessari önn formlega lokið með nokkuð sannfærandi niðurstöðu. Allar einkunnir komnar í hús og svo virðist sem kallinum hafi bara gengið þokkalega vel, þrátt fyrir örlítinn kvíða á vissum tímapunkti. Meðaleinkunn upp á 7,2 úr fimm fögum og enginn einkunn fyrir neðan 7. Verður þetta að teljast gott, eða hvað? Má glökkt sjá að árangurinn er mjög jafn og vill svo skemmtilega til að enginn tilviljun ræður þar um og fyrir þessu árangri einhlít skýring. Aðferðafræði annarinnar má þakka Einari nokkrum Harðarsyni en hann notaði hana fyrir nokkrum árum með  sama árangri. Til þess að útskýra þetta nánar fyrir lesendum þarf að skýgnast eylítið inn í forsögu málsins.



Þarna erum við að losa um smáspennu með einni af að ferðunum sem Einsi lærði í anotomíunni in da old days. 
Takið sérstaklega hvað hann er fíflalegur á þessari mynd.      Annað en ég!

 

Einar er, eins og flestir vita, Sjúkraþjálfarinn minn (þó svo ég hafi aldrei þurft á honum að halda) og góður vinur. Komst hann með nokkuð merkilegum hætti í gegnum klásus í sjúkraþjálfun á sínu fyrsta ári á sínum tíma. Þykir það bara nokkuð merkilegt, sér í lagi hjá Einari þar sem hann var útskrifaður af félagsfræðibraut, engar topp einkannir og hafði í sjálfum sér ekki hugmynd um hvað hann vildi gera áður en hann ákvað að prófa nákvæmlega þetta. Margir dúxar og ágætis nemendur höfðu reynt að komast í gegnum þennan klásus en ekki tekist, þar sem eitt sérstakt fag stóð einna helst í þeim, svo kölluð anatomía.  Einar vissi því fyrirfram að þetta yrði líklegast erfiðasti hluti námsins og var anotomían því í sérstakri gæslu fyrsta misserið. Er líða fór á námið lagði hann mat á þá áfanga sem hann var í og slakaði á kröfum þeirra sem gengu vel, til þess að nýta tíman í það sem gekk verr. Þetta varð til þess að einkanir hans voru allar undir meðallagi en þó það góðar að hann náði öllum fögum til þess að komast í gegnum klásusinn.  

Námsmenn hafa yfirleitt ríka tilhneigingu til að hafa meira gaman af því sem þeir skilja og gengur vel með. Að samaskapi hunsa frekar það sem þeir skilja ekki og gengur verr. Nákvæmlega þessu ættlaði maður að verða fyrir nú í haust en fór svo meðvitað að slaka á kröfum í því sem lá einna best fyrir manni og einblína frekar á það sem gekk verr. Með þessari aðferðafræði tekst manni að jafna álag og áherslur milli áfanga sem leiðir til þess að einkunnir og kunnátta milli þeirra jafnast út. Fyrir vikið verður kunnáttan meiri í því sem maður er lélegur í sem gerir sjálfsagt lítið annað en að hjálpa manni í framhaldinu.

Ég vil því nota tækifærið og þakka Einari fyrir góðar ábendingar í námstækni og vona að þetta nýtist sem flestum sem þurfa.

Ingþór.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 03:02:29 / tjulli

Urður, Verðandi, Skuld

Þá er búið að flauta skólann af í bili og við tekur tímabil sem allir (mjög margir) virðast hafa verið að bíða eftir: Það að kallinn fari að rífa upp rörtangirnar og skrúfi saman búta og nippla hraðar en skugginn.  Ekki eins og maður sé eitthvað voða spenntur en ég hef reynt ýmislegt til að fá fólk til að leita annað.

Píparinn: “Það er bara svo brjálað að gera í skólanum maður, að ég hef engan tíma fyrr en einhvern tíma eftir próf þannig að það verður ekki fyrr en undir jól sem ég kemst í þetta hjá þér.”

The Cliant: Heyrðu flott, það verður þá bara að vera þannig, sjáumst þann 11.des. ekki satt?”
Píparinn:
“Já heyrðu, og taxtinn var kominn í 3800 svart!.”
The Cliant: “Já er það, ég hef allavega nógan tíma til að safna þangað til þú kemur.  Sjáumst!”

  Ég verð að fara finna nýja taktík.......því þessi er búinn að klikka allavega 9 sinnum frá því í haust. Fólk því farið að bíða í löngum röðum eftir því að maður klæði sig úr skólafötunum.  Afhverju var ég ekki bara í því að selja tryggingar eins og Víkingur?  Ekki margir sem eru að spá í tryggingarnar sínar svona rétt fyrir jólinn.
Það er náttúrulega fínt að ná sér í smá pening, er þa'ki. Hvað er maður þá að kvarta því ekki allir sem komast góða þénustu í milli annana.

 

 

 

Ég sé ekki fyrir mér félaga mína út skólanum hlaupa í einhverja mikla þénustu í fríinu.
Þeir reyna sjáfsagt bara að halda kúlinu eins og þeim er lagið. 

Maður er greinilega að hafa það helvíti gott í þessu skóla stússi, svo gott að maður nennir ekki að vinna. Áhuginn á plumbinu hefur dvínað með hverjum deginum sem líður, svo mikið að komið hafa yfirlýsingar á borð við það maður sé hættur í þessu basli fyrir fullt og allt. Og er nú svo komið að lítill sem enginn áhugi er fyrir því að halda í tækninám. Að fara í tækninám var einmitt réttlæting þess að hætta að vinna og fara í skóla. Ég sem var búinn að kortleggja þetta frá A til Ö og leggja dæmið þannig niður fyrir mig að ekker gæti flogið yfir nema fuglinn fljúgandi.  En það er eins og ég hafi breytt mér í fuglslíki í garði Gunnlaðar eftir að hafa drukkið í mig alla viskuna í vetur og er á góðri leið með að kasta þessum fyrri áformum um frama á tæknisviðinu, tilbúinn að sjá hvað er handan fjallsins.  Hinir ýmsu möguleikar hafa skotið upp kollinum hvað þetta varðar, þar á meðal Stjórnmálafræði, Heimspeki og Hagfræði.

Ég lít þannig á málið, að það var ekki planað að fara í pípulagnir á sínum tíma, ekki þannig að maður sjái eitthvað eftir því, en ég átti góðan og farsæla 11 ára feril á því sviði. Í framhaldi af því ætti að liggja beinast við að fara í tækninám ef maður á annað borð ættlar að mennta sig eitthvað meira. En er það sem liggur beinast við, endilega það rétta?  Hvað er eiginlega það rétta?

 

 

Oftast verða hlutir ekki nógu spennandi þegar er búinn að ákveða endirinn. Við skulum því láta Urður, Verðandi og Skuld sjái um þennan.

 

Kv  Ingþór.   Ég fer í stýpur þann 18.     og N.B.  langa í svona sólgleraugu í jólagjöf.

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 16:53:07 / tjulli

Óskastaða

Haldið þið ekki að mér hafi allt í einu dottið það snallræði í hug að fara að hripa niður nokkrar línur á blað, bara svona rétt til að vita hvort þetta væri ennþá hægt en síðast en ekki síst til að friðmælast við þeim örfáu sálum sem ekki enn hafa gefist upp á blogginu okkar. Séu þeim færðar miklar og góðar þakkir að fylgjast með meðan ekkert gerist.

 

Ég ættla ekki að fara tíunda sérstaklega hvað hafi verið svona mikið að gera hjá fjölskyldunni en hér hefur ríkt einhver óskýrður tímaskortur undanfarna mánuði og gerum við ráð fyrir að svo sé hjá flestum öðrum einnig.  Hluta má skýra með því að Jóhanna er aftur farinn að vinna (50%) og hafa einnig kennararnir í skólanum verið nokkuð iðnir við að halda manni við efnirð en það sem meira er hefur kallinn notað tækifærið og tekið upp gamla yðju sem tengist heldur betur fyrri framhaldskóla árum. Svo skemmtilega vill að þetta haust hefur tónlista og allskyns viðburðalíf verið í miklum blóma hér á Skaga, og hefur það komið sér einnkar vel fyrir framhaldskóla nemandann með stóru fjölskylduna.  S.s. gamli góði hljóðmaðurinn er gengin aftur, dálítið rusty til að byrja með en “hiðmagnþrungnahljóðeyra” virðist aldrei betra en fyrr. Að vísu hefur tækninni fleygt heilmikið fram á þessu 12 ára skeiði,  og hefur því tíminn í þetta runnið út eins og heitar lummur m.a. til að nema helstu tækni nýungar. Ef þetta er bara ekki helmingi skemmtilegra fyrir vikið.
.

 

Gigg mynd: Frá tónleikum Þjóðlagasveitar Akranes 18. nóv. í Borgarleikhúsinu.

 

 

En þessu fylgir skammgóður vermir og hef ég ort um það lítla stöku sem er á þessa leið:

Við tækniborðið tíminn líður
því tekur það stund að átta sig
en Jóhanna situr ein og bíður
þess ég fari að sýna mig            (Þarna eru sko stuðlar og höfuðstafi, takið eftir því.)


En ég segi bara eins og maðurinn sagði:

“Það er ekki á hverjum degi sem menn fá mjög vel borgað
fyrir að gera það sem þeim finnst skemmtilegast í heimi”

Var þetta víst haft eftir Ivari nokkrum Haugssyni í samtali við DV er blaðamaður var að inna hann eftir hvernig stæði á því að hann væri handrukkari. !-)

 

Við látum þetta duga í bili. Lifið heil.   Tjúlli MIX.

 



 



 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 15:17:24 / tjulli

Snilldarnámskeið

Rakst á þetta snilldarnámskeið sem ég ætla að senda Ingþór á

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!


Allir velkomnir aðeins fyrir karla..

Ath: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

Fyrri dagur

Hvernig á að fylla ísmolamót?
Skref fyrir skref með glærusýningu

Klósettrúllur vaxa þær á klósettrúlluhaldaranum?
Hringborðsumræður

Munurinn á ruslafötum og gólfi
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)

Diskar og hnífapör: fer þetta sjálfkrafa í vaskinn eða uppþvottavélina?
Pallborðsumræður nokkrir sérfræðingar

Að tapa getunni
Að missa fjarstýringuna til makans Stuðningshópar

Læra að finna hluti
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi Opin umræða



Seinni dagur

Tómar mjólkurfernur: eiga þær að vera í ísskápnum eða í ruslinu
Hópvinna og hlutverkaleikir

Heilsuvakt: það er ekki hættulegt heilsunni að gefa henni blóm
PowerPoint kynning

Sannir karlmenn spyrja til vegar þegar þeir villast
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar

Er erfðafræðilega ómögulegt að sitja þegandi meðan hún leggur bíl?
Ökuhermir

Að búa með fullorðnum: Grundvallarmunur á því að búa með mömmu þinni og maka
Fyrirlestur og hlutverkaleikir

Hvernig á að fara með eiginkonunni í búðir
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni

Að muna mikilvægar dagsetningar og að hringja þegar þér seinkar
Komdu með dagatalið þitt í tímann

Að læra að lifa með því að hafa alltaf rangt fyrir sér
Einstaklingsráðgjöf og samtöl

Kv Jóhanna


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 23:45:51 / tjulli

Hver endir skapar nýtt upphaf

Á morgun er síðasti formlegi vinnudagurinn minn fyrir Eðallagnir.

Ég hóf störfn hjá fyrirtækinu þriðjudaginn 6. júní 1995 og er því tilvalið að hætta sama vikudag. Þriðjudagurinn er til þrautar og má þar vel vera því engann veit ég annan sem starfað hefur jafnlengi við hlið Jóns Bjarna og nú hefur verið reynt. Jón Bjarni er sérstakur karekter og umdeildur,  sjálfsagt fellur hann einhverjum ekki til geðs. En við höfum átt í gott samstarf, sem byggir á gangkvæmu traust og virðingu, því ella hefðu veturnir ekki orðið 11. Það eru ekki margir sem geta sagt að "hvergi hefði ég viljað læra þessa pípulögn annarstaðar en hjá Jón Bjarna Gíslasyni".  Kannski vegna þess að ég er sá eini sem hefur fengið tækifæri til þess. En það er einmitt faglegur áhugi hans og sú þekking sem hann miðlaði af sér sem rekur mig til þess að taka næsta skref.
Þessi áform mín hafa spurts út um bæinn síðustu daga, svona í aðdraganda þess að ég er að fara að hætta. Allir sem maður rekst á hvetja mann með ráðum og dáðum en  það fyndna er að allir vorkenna Jóni en enginn mér. Það er engu líkara að ég væri komin á græna grein með að hætta.

En hver endir skapar nýtt upphaf. Blogg sumarfríið er senn á enda og ekkert því lengur til fyrirstöðu að greina ykkur frá komandi ævintýrum. Þetta á eftir að verða kúltúr sjokk þar sem maður situr og lærir með börnum sem eru c.a. helmingi yngri en maður sjálfur, í tímum hjá sömu kennurum og voru síðast, fyrir 16 árum, þannig að þeir eiga eftir að virka eins og uppvakningar til að byrja með.

Þetta verður s.s. rosalega spennandi.

IB


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 16:00:04 / tjulli

Sumarfrí.

.

Hér virðast allir vera bara ennþá í sumarfríi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 20:28:37 / tjulli

Espania 2006

Her er buid ad vera rosalega heitt, sol flesta daga en mistur thess a milli. Thetta er buid ad vera rosa gaman og verdur ad segjast hapunktur ferdarinnar hingad til vera afmaelisdagurinn hennar Bergthoru en tha forum vid i skemmtigardinn Terra midiga. Alltaf jafn gaman ad koim thangad. Vid erum mikid a ferdinni annad hvort ut a strond eda i gardinn hja hinum. Malid er nefnilega thad ad sundlauginn i okkar gardi er bilud og ekkert nema graent vatn i henni. Svo er ibudin sem vid erum i svolitid lang fra ollu, budum strondinni og odru mannlifi a svaedinu thannig ad thad er mikid labb og Taxa runtur med thra threytta krakka. Annars er ibudin mjog fin og rum god.  HM setur mikin  lit a ferdina og erum vid strakarnir nokkud duglegir ad kikja a boltan, tho ekki nog.  Kellurnar eru lika idnar vid kolan i sinni HM (verslun) lika. Etthvad fyrir alla a spani ekki satt?

Bidjum ad heilsa i bili,  rauda familian.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 11:52:23 / tjulli

Frííííííí.

Loks er maður kominn í lang þráð sumarfrí. Síðustu vikur hafa verið með hreinum ólíkindum, hvert verkefnið rekið annað og engin tími þar á milli til að hlaða batteríin og endurskipuleggja sig. Þegar svo fréttist að maður sé á leið í sumarfrí vilja allir frá sitt og allt fer í kross. Því fylgir mikil óreiða og þreyta.  Maður hefur nú oft tekið svona tarnir á lifsleiðinni en sjaldan eða aldrei orðið eins þreyttur og  nú. Á þetta virkilega að verða svona eftir því sem líður á fertugsaldurinn?  Það var enginn búinn að minnast á það!

Spánn er rétt handan við hæðina og þar verður lítið annað gert en slappað af, sólböð, gin í tónik, og HM í fórbolta á næsta bar.  Ó,  gleymdi einu,  fimmmannafjölskylda.  Þetta verður þá kannski ekkert frí eftir allt saman.

IBT


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 12:36:47 / tjulli

Tjúlli í framboði.

.

Allt gott að frétta en ekki mikill tími til að blogga þessa dagana. Ég læt hér fylgja grein sem ég skrifaði fyrir xdakranes.is svo þið fáið eitthvað lestrarefni.

26. maí 2006 | 10:36
| Greinar
Einn flokkur, ein skýr stefna.

 

Nú ganga í garð bæjarstjórnar kosningar. Fullt er af nýjum kjósendum sem standa frammi fyrir því að kjósa í fyrsta skiptið hér á Akranesi. Mig langar til að koma á framfæri hugeiðingu sem vert er að skoða, sér í lagi fyrir þá sem ekki hafa miklar pólítíska skoðanir og enn ekki gert upp hug sinn.

  Nú verandi meirihluti Framsóknarflokks og Akraneslista Samfylkingarinnar hefur starfað saman s.l. 8 ár. Þetta eru tveir flokkar með tvær stefnur.  Sá meirihluti er líklegast fallinn. Hvað tekur þá við?  Þrír flokkar, með þrjár stefnur?  Tveir flokkar með tvær stefnur?  Þegar tveir eða fleiri flokkar taka hödum saman um að stjórna bæjarfélagi er það ekki ákveðið fyrirfram hverju skal fórnað af þeim loforðum sem gefin voru fyrir kosningar. Oft hefur ágætis málum og hugsjónum verið varpað fyrir borð í samningum um stafhæfan meirihluta.

  Með því að tryggja einum flokki hreinan meirihluta ganga bæjarbúar að einni málefnastefnu, sem liggur ljós fyrir og unnið verður að næstu fjögur árin.

  Þannig hefur fólk haft það á Seltjarnarnesi. (D)
Þannig er það í Garðabæ. (D)
Þannig vill fólk hafa það í Reykjanesbæ. (D)
Þannig vill fólk hafa það í Hafnafirði. (S)
Þannig verður það í Kópavogi. (D)
Og allt bendir til þess að þannig verði það í Reykjavík. (D)

  Því ekki að hafa það þannig hér á Akranesi. (D)

  Einn flokkur, ein skýr stefna.

Mörgum finnst einfaldlega betra að vita hvað tekur við eftir kosningar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur skýra málefnastefnu. Hafir þú ekki kynnt þér hana nú þegar skaltu gera það. Hún liggur frammi á kosningaskrifstofu flokksins og er einnig auðsótt á netsíðu hans: www.xdakranes.is

  Sjáfstæðisflokkurinn er eina stjórnmálaaflið á Akranesi sem á raunhæfan möguleika á að ná hreinum meirihluta í komandi kosningum.
Með því að tryggja frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins aðkvæði leggur þú þitt af mörkum til möguleikans að ein skýr málefnastefna leiði framtíð Akraneskapstaðar næstu ár.

Ingþór Bergmann Þórhallsson

Höfundur skipar 10. sæti fram-boðslista Sjálstæðisflokksins fyrir komandi sveitastjórnarkosningar


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6